ég um mig frá mér til mín

þvílkíkt eymdarlíf

07.07.2008 20:14:40 / valdisms

mánudagur til mæðu:(

Við fjölskyldan skelltum okkur á írska daga um helgina eða bara heim í sæluna. Mikið er nú alltaf gott að fara heim til mömmu og pabba:) Á föstudagskvöldinu var grill veisla í garðinum á brautinni og voru það afkvæmi mömmu og pabba, Sigvaldi, Addý, Árni Geir og Didda Dalvíkingur sem mættu í partýið. Eftir grillið arkaði hersingin niðrí bæ og sáum við þar eldri borgara dansa línudans og svo voru tónleikar með Í svörtum fötum og Ný Dönsk. Þetta var nú bara æði þar sem mömmunni finnst strákarnir Í svörtum fötum bara ÆÐI. Litla barnið hrópaði upp yfir sig "hey mamma þetta er Immi ananas:d
Mamma hafði tjaldað kúlusúkk fyrir framan hús fyrir börnin og haldiði ekki að eitthvert helv... andsk... djö... fífl og hálfviti hafi ekki bara kveikt í tjaldinu um nóttina og vöknuðum við mamma við það þegar löggan kom og lét okkur vita. Var þá kúlusúkkið rústir einar og dótið sem var í tjaldinu brennt og ónýtt.
Á laugardeginum fórum við í tívolí og á einhvern markað í íþróttahúsinu og ég skil ekki alveg hvað er að mér en einhverra hluta vegna verð ég alltaf svo pirruð þegar það er mikið af fólki í kringum mig og fór þetta bara í pirrurnar á mér. Laugardagskvöldið var svo bara rólegt ég félagsskíturinn:haha: bara heima hjá mömmu á meðan systur mínar skelltu sér á lopapeysuna.
Keyrðum svo bara heim á sunnudeginum og skildum litlu börnin eftir hjá ömmu,afa og Helgu.

Mikið væri ég nú til í að vita hverjir þessir 50 sem eru að skoða þessa síðu séu. Mér finnst þetta nú kannski aðeins of margir:!:

» 15 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 10:14:32 / valdisms

Föstudagur

Var eiginlega búin að ákveða að blogga ekkert fyrr en eftir helgi þar sem ekkert er búið að gerast NEMA að niðurstöðurnar eru komnar úr sýninu sem var sent og jújú viti menn þetta er lupus eða rauðir úlfar:( Maður verður bara að taka því eins og hverju öðru úlfsbit :haha: og breyta því sem þarf að breyta og þess háttar til dæmis er nr 1 að hætta að reykja þó fyrr hefði verið og verður fólk þá bara að umbera geðsveiflurnar og geðköstin á meðan á því stendur en ef þið sjáið mig með bestu vinkonuna (sígóið) þá er ekkert því til fyrirstöðu að þið gefið mér eitt gott spark í rassgatið eða bara beint í fésið:d Svo ætlar Elín ein af skólasystrum mínum að lána mér bók sem hún var að lesa og þar er minnst á þennan sjúkdóm og mataræðið. Það er um að gera að reyna að gera allt sem maður getur til að koma í veg fyrir að hann komist í gírinn. Fyrir þá sem lesa þetta og ekki vita hvað þetta er þá er auðveldast að útskýra þetta þannig að þeir sem fá þennan sjúkdóm fá ofnæmi fyrir sjálfum sér, ónæmiskerfið fer í algjört fokk.
Það styttist í að við förum á Skagann bara 7 dagar og svei mér þá ef ég er ekki að verða bara pínu spennt hef ekki farið síðan Dísa systir átti afmæli í febrúar og finnst það næstum eins og heil eilífð síðan.
Skagaliðið og Stefanía er að fara í sumarbústað í dag í Biskubstungunum held ég og ætlar að vera í viku og ætlar svo að taka á móti okkur á brautinni á föstudaginn með svaka veislu, blöðrum, borðum og öllum pakkanum hahahhahh það vantar ekki væntingarnar hjá manni hahahahahha.
Jæja best að hætta þessu röfli og fara að gera eitthvað að viti hérna á heimilinu.
kveðja
moi

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.06.2008 12:00:35 / valdisms

Þriðjudagur til þreytu

Lítið gerðist nú hjá okkur seinustu viku. Frumburðurinn kom heim á laugardaginn eftir 2ja vikna útlegð á Akureyri og fór svo á Akranes á sunnudaginn með Sigþóri og ætlar að vera í tvær vikur þar eða þangað til við sækjum hana. Við erum nebbla að spá í að taka töku tvö á írska daga og sjá hvort þetta verði nokkuð svona agalegt eins og í fyrra.
Ég átti helgarfrí og lá bara eins og skata og át eins og svín. Held ég hafi borðað fyrir alla hina dagana sem ég át akkúrat ekki neitt nema AB drykkjar jógúrt og banana. Á laugadeginum grilluðum við nautakjöt og ég verð nú bara að segja að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum með það, ekki það að það hafi verið seigt eða eitthvað svoleiðis heldur finnst mér það eiga bara vera kryddað með salti og pipar. Svo var hann Gulli gull í mat í hádeginu á sunnudaginn og þá var kubba steik ohhh hvað hún stendur alltaf fyrir sínu. Restin af sunnudeginum fór svo bara í að hanga annað hvort í gardínunum eða ljósakrónunum:lol:

Mér leið ferlega furðulega alla helgina fannst eins og það vantaði eitthvað en fattaði það svo á sunnudaginn þegar Dagný kom aftur í bæinn að það var bara hún sem mér vantaði:):):)

Núna eru bara 1-2 vikur þangað til maður fær einhver svör út úr þessu veikinda veseni, ein búin að líða og vonandi líða hinar jafn fljótt. Fæ mín aumingja ég grenju köst en þau eru fljót að líða hjá og smæla bara framan í heiminn:haha:

Helgi er byrjaður á fótbolta æfingum og finnst það algjört æði og Róberta er bara ekki að nenna að fara á þennan leikskóla lengur. Hún er alveg komin með upp í kok á þessu þessi elska.

well well nóg komið í bili
ble ble

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 08:19:04 / valdisms

Miðvikudagur

Kominn tími á annað blogg
Helgin var bara róleg fór að vinna á laugardaginn í Samkaup og skrapp svo til hennar Dagnýjar minnar á laugardagskvöldið og svo þaðan á barinn í smá stund:lol: Á sunnudaginn gerði ég EKKERT.

Mánudagurinn fór í að vinna og svo fór ég í blóðprufurnar og sýnatökuna þannig að nú er bara að bíða og sjá hvað setur. Er oggu stressuð en það er bara að bíta á jaxlinn:$ Niðurstöðurnar koma eftir 2-3 vikur kræst hvað það er erfitt að þurfa að bíða svona lengi þar sem allt á gerast í gær hjá mér.
Ekki það að ég sé eitthvað óþolinmóður einstaklingur jeee right:lol::lol:

17.júní var ömurlegur eins og nánast alltaf. Skítkalt og gáfumst við hjónin upp á að hanga niðrá torgi um 3 leytið og fórum heim, ég í bælið og Kallinn að góna á fótbolta. Mikið er ég ekki að skilja hvernig það er hæt að horfa á 3 leiki á sama deginum mér finnst allir liekir vera eins og það er nú víst ekki.

Helga mín og Sissi urðu fyrir því óláni að einhver helv... asni keyrði á bílinn þeirra fyrir utan ´Bónus og fór svo bara. Hvað er að fólki er ekki til snefill af samvisku hjá svona liði í dag. Það ætti að klína tyggjói á hárið á svona fólki. 

jæja held barasta að þetta sé að verða gott hjá mér í bili 
kveðja þessi ofur þolinmóða sem varla rennur í blóðið :haha:
 

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 11:13:24 / valdisms

jæja

Margt hefur nú gerst undanfarið á þessum bænum. Skólinn búinn hjá börnunum og bara voða gaman hjá þeim. Mamman hætt að vinna á pósthúsinu og farin að vinna í Samkaup og líkar bara rosa vel.
Vinkona Stefaníu flutt til Akureyrar og er Stefanía búin að vera þar síðan í seinasta föstudag og kemur ekki heim fyrr en næsta föstudag. Helgi búinn að eignast nýjan félaga og eru þeir búnir að vera eins og samlokur frá því þeir kynntust. Hann heitir Adrían og er hreint út sagt alveg yndislegur. Róberta er enn á leikskólanum og hlakkar alveg gífurlega til að byrja í skólanum.
Mamman stendur í smá veikinda veseni þessa dagana og átti að fara í blóðprufu í morgun og sýnatökur en því var frestað til mánudags þar sem það eru engar samgöngur á milli og sýnin myndu skemmast um helgina. En það er bara að vera beinn í baki og setja hökuna upp í loft og brosa framan í heiminn:d

» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 11132
Klukkan
RSS tengill
Ég
Nafn: Valdís María Stefánsdóttir Tölvupóstfang: valdism@simnet.is Msn netfang: valdisms@msn.com Afmælisdagur: 12.mars Heimilisfang: Himnaríki Staðsetning: Siglufjörður Um: gift á þrjú yndisleg börn
Myndasöfn